621 smitaðist um borð í Diamond Princess

AFP

Alls hafa verið greind 79 ný tilvik kórónuveirunnar meðal fólks um borð í skemmtiferðaskipinu Diamond Princess. Það þýðir að smit um borð eru 621 talsins en verið er að hleypa öllum farþegum í land.

Hundruð farþega flýttu sér frá borði í dag í Yokohama eftir tveggja vikna sóttkví. Hvergi annars staðar utan Kína hafa jafn margir greinst með COVID-19-veiruna á einum stað og um borð í skemmtiferðaskipinu. 

Japönsk yfirvöld hafa sætt harðri gagnrýni á hvernig staðið var að einangruninni og óttast margir að nú muni veiran breiðast hratt út í Japan og víðar en fólkið um borð er af yfir 50 þjóðernum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert