Með andlitsgrímur í fjöldabrúðkaupi

Úr fjöldabrúðkaupinu á Filippseyjum.
Úr fjöldabrúðkaupinu á Filippseyjum. Skjáskot úr myndskeiðinu

Árlegt fjöldabrúðkaup á Filippseyjum var með óvenjulegu sniði í þetta sinn vegna þess að andlitsgrímur og heilbrigðisskoðanir voru hluti af athöfninni.

Ástæðan er sú að fólkið vildi hafa vaðið fyrir neðan sig vegna kórónuveirunnar COVID-19, að sögn BBC

Í borginni Bacolod gengu 220 pör í hjónaband í athöfninni, sem var ríkisstyrkt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert