Öldungadeildarþingmaðurinn Amy Klobuchar ætlar að draga sig út úr kapphlaupinu um tilnefningu Demókrataflokksins til embættis forseta Bandaríkjanna. Í staðinn mun hún styðja Joe Biden í baráttunni.
The New York Times og sjónvarpsstöðvar á borð við NBC greindu frá því að Klobuchar myndi draga sig í hlé og koma í staðinn fram á kosningafundi Biden í Dallas í kvöld.
Biden bar sigur úr býtum í forkosningunum í Suður-Karólínu á laugardaginn og er af mörgum talinn helsti keppinautur Bernie Sanders um að mæta Donald Trump í forsetakosningunum í nóvember.
Klobuchar hlaut aðeins 3,1% atkvæða í kosningunum á laugardaginn.