Weinstein sagður hafa fengið hjartaáfall

Harvey Weinstein.
Harvey Weinstein. AFP

Harvey Weinstein, sem fundinn var sekur um nauðgun og kynferðislega árás, fékk hjartaáfall í kjölfar þess að 23 ára fangelsisdómur var kveðinn upp yfir honum í gær.

Þetta segir talsmaður fyrrverandi kvikmyndaframleiðandans en að hans sögn var hjartaáfallið vægt. New York Times greinir frá.

Wein­stein hefði mest getað fengið 29 ára dóm fyr­ir brot­in tvö sam­an­lögð. Báðum kon­un­um sem Har­vey var dæmd­ur fyr­ir að hafa brotið á var fagnað ákaf­lega er þær gengu inn í dómsal­inn í gær ásamt fjór­um vitn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert