Norðmenn vilja styrktarsjóð fyrir fátæk ríki

Kona með andlitsgrímu til að verjast kórónuveirunni.
Kona með andlitsgrímu til að verjast kórónuveirunni. AFP

Norðmenn vilja stofna styrktarsjóð innan Sameinuðu þjóðanna til að hjálpa fátækum þjóðum að berjast við kórónuveiruna.

„Við höfum áhyggjur af áhrifunum sem vírusinn getur haft á þróunarlöndin sem eru með viðkvæmari heilbrigðiskerfi,“ sagði Dag Inge Ulstein, ráðherra þróunaraðstoðar.

„Alþjóðleg samstaða þvert á landamæri er mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að setja fjármagn í slíkan sjóð hjá Sameinuðu þjóðunum,“ bætti hann við.

Búist er við því að sjóðurinn verði stofnaður fljótt og jafnvel í þessari viku.

Í gær höfðu yfir 324 þúsund tilfelli kórónuveirunnar greinst í 171 landi, samkvæmt talningu AFP-fréttastofunnar, og að minnsta kosti 14.396 látist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert