Þriggja og fjögurra ára börnum nauðgað

AFP

Tveimur stúlkubörnum, þrigga og fjögurra ára, var nauðgað í Sómalíu í vikunni sem leið og hefur málið vakið hörð viðbrögð meðal þjóðarinnar. Ríkisstjórn landsins hefur fordæmt ódæðið. 

BBC hefur eftir lækni sem starfar á sjúkrahúsinu þar sem þær eru til meðferðar að báðar þurfi á viðamiklum skurðaðgerðum að halda eftir ódæðið.

Foreldrar stúlknanna segja að frænkurnar hafi verið að ganga heim úr skólanum í Afgoye, sem er skammt frá höfuðborginni, Mogadishu. Þeim var rænt af mönnum sem fóru með þær og nauðguðu þeim og skildu eftir . Það var ekki fyrr en daginn eftir sem foreldrar þeirra fundu þær eftir að hafa leitað fullir örvæntingar að dætrum sínum þegar þær skiluðu sér ekki heim. 

Ritstjóri BBC í Afríku, Will Ross, segir á vef BBC að sú staðreynd að börnum sem aðeins eru þriggja og fjögurra ára gömul skuli vera nauðgað hafi valdið gríðarlegu áfalli meðal fólks í landinu. Slíkir glæpir hafi alltaf verið framdir en nú sé farið að greina frá því opinberlega og að fólk vonist til þess að það verði til þess að hlutirnir breytist. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert