Boris Johnson segist vera brattur

Boris Johnson.
Boris Johnson. AFP

Boris Johnson segist vera brattur þrátt fyrir að hafa dvalið á sjúkrahúsi í nótt. Breski forsætisráðherrann var fluttur á St. Thomas-sjúkrahúsið í London í gærkvöldi til rannsóknar tíu dögum eftir að hann greindist með kórónuveiruna. Hann var með einkenni veirunnar, þar á meðal hita og hósta.

Johnson verður áfram við stjórnvölinn í Bretlandi þrátt fyrir að Dominic Raab, utanríkisráðherra landsins, hafi stjórnað fundi í morgun vegna veirunnar.

Dominic Raab yfirgefur Downingstræti 10 í morgun.
Dominic Raab yfirgefur Downingstræti 10 í morgun. AFP

Í tísti sagði Johnson, sem er 55 ára, að hann „væri í sambandi við liðið mitt við að berjast í sameiningu gegn þessari veiru og við að tryggja öryggi allra“, að því er BBC greindi frá.

Hann þakkaði einnig „frábæru starfsfólki heilsugæslunnar“ fyrir að meðhöndla hann og aðra sjúklinga. „Þið eruð þau bestu í Bretlandi.“

Áfram undir eftirliti

Talsmaður forsætisráðherrans sagði að hann yrði áfram undir eftirliti á sjúkrahúsinu og sagði rússneskar fregnir um að hann væri kominn í öndunarvél rangar.

Í síðasta mánuði sagði talsmaðurinn að ef Johnson veiktist og gæti ekki unnið myndi Raab hlaupa í skarðið fyrir hann.

Lögreglumenn fyrir utan sjúkrahúsið þar sem Johnson dvelur
Lögreglumenn fyrir utan sjúkrahúsið þar sem Johnson dvelur AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert