Bernie Sanders dregur sig í hlé

Bernie Sanders.
Bernie Sanders. AFP

Bernie Sanders hefur ákveðið sækjast ekki lengur eftir tilnefningu Demókrataflokksins til embættis forseta Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Eftir að Sanders tapaði fyrir Joe Biden í forvali í þremur ríkjum Bandaríkjanna um miðjan mars sagðist hann ætla að íhuga stöðu sína. 

Landsþingi banda­ríska Demó­krata­flokks­ins var á dögunum frestað til 17. ág­úst vegna kór­ónu­veirunn­ar.

Þar með er leiðin greið fyrir Joe Biden sem frambjóðandi Demókrataflokksins í baráttunni við Donald Trump Bandaríkjaforseta í nóvember næstkomandi.

Joe Biden og Bernie Sanders bregða á leik 15. mars …
Joe Biden og Bernie Sanders bregða á leik 15. mars síðastliðinn. AFP

Sanders er 78 ára vinstrisinni sem atti kappi við Hillary Clinton um forsetatilnefningu Demókrataflokksins árið 2016. Hann hélt starfsmannafund í gegnum fjarfundabúnað þar sem hann „tilkynnti að hann ætlar að hætta baráttu sinni um forsetaembættið“, sögðu aðstoðarmenn hans í tilkynningu.

Sanders var efstur á blaði demókrata fyrr á þessu ári í kapphlaupinu en Biden, sem er fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur sótt mjög í sig veðrið síðan þá.

Fréttin hefur verið uppfærð

Bernie Sanders hefur dregið sig í hlé.
Bernie Sanders hefur dregið sig í hlé. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert