Fer með ljóð á verðlaunamynd

Ljósmyndari frönsku AFP-fréttastofunnar, Yasuyoshi Chiba, vann hin virtu World Press Photo-verðlaun í dag.

Verðlaunin hlaut hann fyrir ljósmynd af mótmælanda í Súdan fara með ljóð. Í niðurstöðu dómnefndar kom fram að líta mætti á myndina sem tákn vonar.

Mynd Chiba var tekin á síðasta ári þegar mótmælendur kröfðust aukinna valda almennra borgara. Að mati dómefndarinnar sýndi myndin kraft ungdómsins og listhneigð á sama tíma og hún hafði yfir ljóðrænum gæðum að ráða.

Á verðlaunamyndinni sést ungur maður fara með ljóð og á …
Á verðlaunamyndinni sést ungur maður fara með ljóð og á meðan er hann lýstur upp með ljósum úr farsímum. AFP
Verðlaunahafinn Yasuyoshi Chiba.
Verðlaunahafinn Yasuyoshi Chiba. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert