Clinton styður forsetaframboð Biden

Vel hefur farið á með Biden og Clinton í gegnum …
Vel hefur farið á með Biden og Clinton í gegnum tíðina. AFP

Hillary Clinton, fyrrverandi forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins og fyrrverandi forsetafrú, hefur bæst í hóp þeirra sem styðja Joe Biden í framboði hans til forseta Bandaríkjanna.

„Ég vil bæta minni rödd í hóp þeirra sem hvetja þig áfram til forsetaframboðs,“ sagði Clinton á fjarfundi með varaforsetanum fyrrverandi í dag. 

„Ég vildi að þú værir forseti núna. Hugsið ykkur að hafa alvöru forseta en ekki einhvern sem þykist vera það fyrir framan myndavélarnar,“ bætti hún við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert