Sakar Kínverja um að vilja hann úr embætti

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AFP

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, segir að Kína gerði hvað sem er til þess að koma í veg fyrir endurkjör hans í embætti forseta. Þetta kemur fram í einkaviðtali Reuters-fréttastofunnar við Trump.  

Frétt Reuters

Að sögn Trump hefðu kínversk yfirvöld átt að greina frá kórónuveirufaraldrinum miklu fyrr en gert var og standi nú frammi fyrir ýmsum afleiðingum þessa af hálfu Bandaríkjanna. Í frétt BBC segir að á sama tíma sé Trump gagnrýndur fyrir að hafa ekki brugðist nægjanlega við í byrjun faraldursins. 

Veiran hefur haft neikvæð áhrif á bandarískt efnahagslíf sem þegar var farið að láta undan síga áður en faraldurinn braust út. Eitt helsta kosningamál Trumps fyrir kosningarnar í nóvember er góð staða í efnahagslífi Bandaríkjanna.

Trump sem hefur háð viðskiptastríð við Kína undanfarin ár veitti ekki neinar skýringar á því hvernig hann muni jafnvel bregðast við gagnvart Kína í viðtalinu. „Það er margt sem ég get gert. Við erum að skoða hvað gerðist.“ „Kína mun gera hvað sem er til þess að ég tapi kosningabaráttunni.“

Í viðtalinu við Reuters segist Trump telja að kínversk yfirvöld vilji fá Joe Biden sem forseta Bandaríkjanna en Trump segist sjálfur vera vantrúaður á kannanir sem bendi til þess að Biden geti farið með sigur af hólmi. 

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert