Reade vill að Biden hætti við framboð

Tara Reade, fyrrverandi samstarfskona Joe Biden, í viðtali við Megyn …
Tara Reade, fyrrverandi samstarfskona Joe Biden, í viðtali við Megyn Kelly í kvöld. Reade sakar Biden um að hafa beitt hana kynferðisofbeldi fyrir 27 árum og vill hún að hann hætti við framboð til Bandaríkjaforseta. Skjáskot/Twitter

Tara Reade, fyrrverandi samstarfskona Joe Biden, segir að hann ætti ekki að sækjast eftir útnefningu Demókrataflokksins fyrir komandi forsetakosningar. Reade sakar Biden um að hafa beitt hana kynferðisofbeldi fyrir 27 árum en Biden hefur hafnað því. Reade sagði í viðtali í kvöld að hún sé tilbúin að gangast undir lygapróf til að sanna mál sitt. 

Rea­de, sem er 56 ára, sagði í hlaðvarpi í mars að öld­una­deild­arþingmaður­inn fyrr­ver­andi hafi sett hend­urn­ar inn und­ir pils henn­ar og brotið gegn henni. Hún hef­ur síðan ít­rekað þetta í viðtöl­um og til­kynnt um þetta til lög­reglu í Washingt­on í byrj­un apríl. 

„Joe Biden, vinsamlegast stígðu fram og taktu ábyrgð á gjörðum þínum. Þú ættir ekki að bjóða þig fram til forseta Bandaríkjanna,“ sagði Reade í viðtali við fjölmiðlakonuna Megyn Kelly í kvöld. 

Tara Reade, fyrrverandi samstarfskona Joe Biden, segir að hann ætti …
Tara Reade, fyrrverandi samstarfskona Joe Biden, segir að hann ætti ekki að sækjast eftir útnefningu Demókrataflokksins fyrir komandi forsetakosningar. AFP

Aðspurð hvort hún vilji að hann hætti við áætlað framboð svaraði Reade: „Ég óska að svo yrði, en hann mun ekki gera það.“ Reade segir að það sé um seinan fyrir Biden að biðja hana afsökunar. 

Þetta er í fyrsta sinn sem Reade kemur fram í fjölmiðlum eftir að Biden kom  fram í morg­un­sjón­varpi í síðustu viku þar sem hann hafnaði ásökunum Reade „Ég veit ekki hvers vegna eft­ir 27 ár er þetta allt í einu nefnt. En ég ætla ekki að velta upp spurn­ing­unni um hver til­gang­ur henn­ar er. Ég ætla ekki að ráðast á hana,“ sagði Biden meðal annars. 

Reade segist vera tilbúin að taka lygapróf með því skilyrði að Biden geri slíkt hið sama. „En hvers konar fordæmi setur það fyrir þolendur ofbeldis? Þýðir það að við erum talin sek og þurfum öll að gangast undir lygapróf?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert