Allir um borð í herþyrlu sem brotlenti í Chukotka-héraði í austurhluta Rússlands í dag létust samkvæmt upplýsingum frá héraðsstjórninni. Alls voru fjórir um borð en þyrlan brotlenti á aðalflugvellinum í Chukotka sem er bæði notaður fyrir almennt flug og sem hervöllur.
Í frétt rússneskra miðla kemur fram að þyrlan, sem var af Mi-8 gerð, hafi verið í æfingaflugi eftir að hafa verið í viðhaldi. Talið að ástæða slyssins hafi verið tæknileg bilun.