Bjóða íbúum Hong Kong ríkisborgararétt

Frá mótmælum í Hong Kong.
Frá mótmælum í Hong Kong.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kveðst reiðubúinn til að bjóða hluta íbúa Hong Kong breskan ríkisborgararétt fari svo að umdeildum þjóðaröryggislögum kínverskra stjórnvalda verði framfylgt. Ef af yrði myndu nær þrjár milljónir íbúa eyjunnar geta sótt sér umræddan ríkisborgararétt, en þar búa um 7,5 milljónir í dag.

Í grein forsetisráðherrans í The Times í morgun kemur fram að umrætt boð væri ein „stærsta breyting“ í sögu vegabréfsáritunarkerfis (e. visa system) Bretlands. Þannig stæði rétt ríflega 2,85 milljónum manna til boða að sækja sér fullgildan ríkisborgararétt í landinu. 

Ný um­deild þjóðarör­ygg­is­lög í Hong Kong voru samþykkt án umræðu á kín­verska þing­inu í maímánuði. Lög­in kveða á um bann við upp­reisn­ar­áróðri, landráði og sjálf­stæðisum­leit­un­um sjálf­stjórn­ar­héraðsins. Lýðræðissinn­ar í Hong Kong hafa boðað til mót­mæla vegna lag­anna, jafnt í Hong Kong sem og á alþjóðavett­vangi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert