Kynþáttaníð er ólíðandi að sögn páfa

Frans páfi.
Frans páfi. AFP

Frans páfi segir að það sé ekki líðandi að bregðast ekki við kynþáttahatri. Páfi lét þessi ummæli falla í dag í kjölfar drápsins á George Floyd í Minneapolis. Hann fordæmir ofbeldið sem hefur fylgt í kjölfar mótmælanna undanfarna daga. 

Að sögn Frans páfa næst ekkert fram með ofbeldi. Hann segist biðja fyrir Floyd og öllum þeim sem hafa látist vegna synda kynþáttahaturs. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert