Gæti tengst hvarfi annarrar stúlku

Húsið þar sem Þjóðverjinn bjó, skammt frá Lagos í Portúgal, …
Húsið þar sem Þjóðverjinn bjó, skammt frá Lagos í Portúgal, þegar Madeleine hvarf árið 2007. AFP

Þýskir saksóknarar rannsaka hvort maður sem er grunaður um morðið á bresku stúlkunni Madeleine McCann tengist einnig hvarfi annarrar stúlku í Þýskalandi.

Fyrr í vikunni greindi þýska lögreglan frá rannsókn sinni á 43 ára Þjóðverja, sem hefur margoft komist í kast við lögin, vegna hvarfs hinnar þriggja ára „Maddie“ á sumarleyfisstaðnum Praia da Luz í Portúgal árið 2007.

Maðurinn, sem þýskir fjölmiðlar kalla Christian B., hefur áður verið dæmdur fyrir kynferðisbrot, þar á meðal barnaníð og nauðgun. BBC hefur birt mynd af honum. 

Skilaboð þar sem blaðamenn eru beðnir um að fara ekki …
Skilaboð þar sem blaðamenn eru beðnir um að fara ekki inn í húsið þar sem Þjóðverjinn bjó. AFP

Saksóknarar kanna nú hvort hann tengist hvarfi fimm ára stúlku, Ingu, frá bænum Schoenebeck í Saxony-Anhalt árið 2015. Inga hvarf sporlaust er hún var stödd í ferðalagi í skóglendi með fjölskyldu sinni. 

Að sögn dagblaðsins Magdeburger Volksstimme átti maðurinn eign í ríkinu og var staddur á svæðinu á svipuðum tíma og stúlkan hvarf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert