Lögreglumenn reknir eftir að þeir ýttu eldri manni

Í myndbandinu má sjá hvernig lögreglumennirnir ýta manninum þannig að …
Í myndbandinu má sjá hvernig lögreglumennirnir ýta manninum þannig að hann meiðist á höfði. Skjáskot/BBC

Nokkur myndbönd af lögregluofbeldi hafa komið upp á yfirborðið í tengslum við mótmæli vegna andláts George Floyd. Í borginni Buffalo í New York fylki var tveimur lögreglumönnum sagt upp störfum eftir að þeir sáust ýta hvítum eldri manni í jörðina með þeim afleiðingum að hann féll aftur fyrir sig og úr hnakka hans blæddi. Myndbandið er aðgengilegt hér að neðan.

Í New York borg var myndband tekið af lögreglumönnum sem fóru hörðum höndum um mótmælendur á sama tíma og þeir hlupu í burtu. 

Fréttirnar af atvikunum bárust einungis klukkustundum eftir minningarathöfn um Floyd í Minneapilis þar sem hann lést eftir að lögreglumaður ýtti hné sínu í háls hans í tæpra níu mínútur. 

Eins og áður hefur komið fram var morðið á Floyd einnig tekið upp á myndband og hefur atvikið vakið mikla reiði víða um heim. Þá hafa mótmæli gegn kynþáttamisrétti og lögregluofbeldi í Bandaríkjunum staðið yfir um nokkurt skeið í Bandaríkjunum og heiminum öllu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert