Milljónir hafa safnast handa dóttur Floyd

Gianna Floyd ásamt móður sinni.
Gianna Floyd ásamt móður sinni. AFP

Fjölmargir hafa lagt söfnun fyrir Gianna Floyd, sex ára gamla dóttur George Floyds, lið og hafa rúmlega 1,6 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvara um 210 milljónum króna, safnast til styrktar Gianna.

Söfnuninni var hrint af stað fyrir þremur dögum á GoFundMe og var markmiðið að safna 1,5 milljónum dala handa dóttur Floyds, sem lést er lögregluþjónn kraup á hálsi hans, en því hefur nú verið náð og rúmlega það.

Rúmlega 51 þúsund manns hafa lagt söfnuninni lið og ef marka má vefsíðuna er fólk enn að styrkja Gianna, flestir um 10 til 50 dali, á meðan aðrir gefa hærri upphæðir eða allt að 500 dali.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert