Yfir 400 þúsund látin

AFP

Meira en 400 þúsund eru látin vegna kór­ónu­veirunn­ar sem fyrst greind­ist í Kína í des­em­ber. Lang­flest­ir hafa lát­ist í Banda­ríkj­un­um, eða 112.096, en alls hafa tæp­lega sjö millj­ón­ir jarðarbúa greinst með smit.

Þetta kemur fram í tölum Johns Hopkins-háskóla.

Af þeim 400.013 sem eru látin hafa 178.755 lát­ist í Evr­ópu en staðfest smit í álf­unni eru nú 2.088.683.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert