Lögreglumaðurinn ákærður fyrir dauða Brooks

Saksóknari í Georgíu-ríki segir ekkert geta réttlætt framgöngu lögreglumanns sem …
Saksóknari í Georgíu-ríki segir ekkert geta réttlætt framgöngu lögreglumanns sem skaut Rayshard Brooks, svartan Bandaríkjamann, í bakið. AFP

Garrett Rol­fe, lög­reglumaður­ sem skaut Rays­h­ard Brooks til bana í Atlanta í Georgíu-ríki á föstu­dag, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi (e. Felony murder). Rol­fe hefur áður verið ávítaður í starfi sínu fyr­ir að beita skot­vopni. 

Garrett Rolfe, lög­reglumaður­ sem skaut Rays­h­ard Brooks til bana í …
Garrett Rolfe, lög­reglumaður­ sem skaut Rays­h­ard Brooks til bana í Atlanta í Georgíu-ríki á föstu­dag, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi AFP

Rol­fe skaut Brooks í bakið á bílastæði við Wen­dy's-veit­ingastað í borginni á föstudag. Lögreglumennirnir hugðust handtaka Brooks. Hann lést af sárum sínum á spítala. Rol­fe var sagt upp störf­um vegna at­viks­ins og fé­lagi hans hef­ur verið færður til í starfi. 

Réttarmeinafræðingur úrskurðaði dauða Brooks manndráp. „Við komumst að þeirri niðurstöðu að þegar Brooks var skotinn ógnaði hann lögreglumönnunum ekki með neinum hætti,“ segir Paul Howard, saksóknari í málinu. 

Hann segir jafnframt að ekkert hafi réttlætt það að skjóta Brooks í bakið, hvað þá að sparka í hann þegar honum blæddi, líkt og sést á myndskeiði sem náðist af vettvangi.

Ákæran á hendur Rolfe er í ellefu liðum og gæti hann átt yfir höfði sér dauðarefsingu, verði hann fundinn sekur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert