Fyrsti mótmælandinn handtekinn undir nýjum öryggislögum

Óeirðalögreglan í Hong Kong í nótt.
Óeirðalögreglan í Hong Kong í nótt. AFP

Karlmaður sem flaggaði fána til stuðnings sjálfstæði Hong Kong varð fyrstur til að verða handtekinn á grundvelli nýrra öryggislaga kínverskra stjórnvalda sem tekið hafa gildi í sjálfsstjórnarborginni.

Samkvæmt frétt BBC hefur lögregla þurft að beita piparúða til að leysa upp þvögur mótmælenda sem saman voru komnir á þessum degi sem markar 23 ár síðan breskum yfirráðum yfir Hong Kong lauk.

Öryggislögin kveða m.a. á um bann við upp­reisn­ar­áróðri, landráðum og sjálf­stæðisum­leit­un­um sjálf­stjórn­ar­héraðsins, og getur brot gegn þeim varðað við lífstíðarfangelsi. Þá er málfrelsi og réttur til mótmæla íbúa Hong Kong verulega skertur með lögunum, en gagnrýnendur segja þau ógna réttar­fars­legu sjálf­stæði Hong Kong. 

Bretar afhentu Kína yfirráð yfir Hong Kong árið 1997 með þeim skilyrðum að kínversk stjórnvöld tryggðu þar sérstakt frelsi hið minnsta næstu 50 ár.

„Kína lofaði íbúum Hong Kong 50 ára frelsi en gaf þeim aðeins 23,“ segir Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og varar við nýjum refsiaðgerðum gegn kínverskum stjórnvöldum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert