Flýta útgáfu bókar um „hættulegasta mann í heimi“

Donald Trump Bandaríkjaforseti er í bókinni sagður vera hættulegasti maður …
Donald Trump Bandaríkjaforseti er í bókinni sagður vera hættulegasti maður í heimi. AFP

Bók Mary Trump, frænku Donald Trump Bandaríkjaforseta, um sögu Trump-fjölskyldunnar verður gefin út þriðjudaginn 14. júlí, eftir að dómari aflétti tímabundnu banni sem sett hafði verið á útgáfu bókarinnar. Í bókinni er forsetinn sagður „hættulegasti maður í heimi“.

Til stóð að bókin, Of mikið og aldrei nóg: Hvernig fjölskylda mín skapaði hættulegasta mann í heimi, (e. Too Much and Never Enough, How My Family Crea­ted the World's Most Dan­gerous Man) kæmi út 28. júlí en þau áform breyttust eftir að lögbann var sett á útgáfu bókarinnar.

Nú hefur lögbanninu verið aflétt og hefur útgefandinn Simon & Schuster ákveðið að flýta útgáfunni samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðu Simon & Schuster.

Mary Trump, höf­und­ur bók­ar­inn­ar, er dótt­ir eldri bróður for­set­ans, Freds Trumps jr., sem lést árið 1981. Í bókinni rifjar Mary upp æsku sína og uppeldi af hálfu „eitraðrar fjölskyldu“ á heimili ömmu hennar og afa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert