Dómstóll Evrópusambandsins hefur ógilt ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að bandaríska tækifyrirtækið þurfi að greiða 13 milljarða evra, yfir tvö þúsund milljarða króna afturvirk í skatta á Írlandi. Ákvörðun samkeppniseftirlits ESB er frá árinu 2016 en Apple áfrýjaði niðurstöðunni.
Evrópusambandið hafði frá árinu 2014 rannsakað skattamál Apple á Írlandi og var þetta hæsta skattasekt sem dæmd hefur verið í Evrópu á þessum tíma.. Það er niðurstaða framkvæmdastjórnar ESB að skattaívilnanir sem írsk yfirvöld hafa veitt Apple séu ólöglegar. Rannsóknin á Apple er ein af mörgum sem framkvæmdastjórn ESB hefur látið gera á skattamálum bandarískra fyrirtækja innan ESB.
Dómurinn féll við almenni dómstóllinn (e. General Court, EGC) í morgun en hann tilheyrir dómstól Evrópusambandsins og hefur aðsetur í Lúxemborg. Dómstóllinn dæmir einkum í málum er varða einstaklinga og lögaðila auk samkeppnismála.
Dómarar tóku stöðu með Apple og töldu þeir að framkvæmdastjórn ESB hafi ekki sýnt fram á að skattaívilnanir írska ríkisins til Apple hafi verið ólöglegur ríkisstuðningur. Hægt er að áfrýja niðurstöðunni.