Pompeo og Mette ræða norðurslóðir og Huawei

Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. Ljósmynd/Samsett

Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna heimsækir Danmörku og Bretland í næstu viku. Frá þessu greindi ráðherrann í dag. 

Í Kaupmannahöfn fundar Pompeo með Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, og Steen Lynge, utanríkisráðherra Færeyja. Danska ríkisútvarpið hefur eftir utanríkisráðherra Danmerkur, að hann hlakki til að bjóða kollega sinn Mike Pompeo velkominn.

Málefni norðurslóða verði einnig sérstaklega til umræðu. Stutt er síðan Carla Sands, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, var í Færeyjum og fundaði hún með fyrrnefndum Jenis av Rana, sem sagði í kjölfarið að Bandaríkin væru áhugasöm um að „gera Fær­eyjar að eins­konar mið­stöð fyrir banda­ríska flot­ann“.

Huawei til umræðu

Pompeo sagði á blaðamannafundi í dag að „kínverski kommúnistaflokkurinn og árásir hans á frjálsar þjóðir um allan heim yrðu efst á döfinni“ á fundunum og vísaði í kjölfarið sérstaklega til ástandsins í Hong Kong.

Þá má vænta þess að málefni kínverska fjarskiptafélagsins Huawei verði til umræðu. Bandarísk stjórnvöld hafa hvatt bandalagsþjóðir sínar til að sniðganga fyrirtækið við uppsetningu 5G-kerfa af öryggisástæðum, en þau óttast, líkt og fleiri, aðgang stjórnvalda þar í landi að kerfum fyrirtækisins. Í gær tilkynntu bresk stjórnvöld að þau myndu banna fjar­skipta­fyr­ir­tækj­um í land­inu að nota búnað frá kín­verska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Huawei við upp­bygg­ingu á 5G-neti í land­inu frá og með ára­mót­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert