Í hungurverkfall fyrir Taylor

Tayl­or var skot­in átta sinn­um af lög­reglu­mönn­um sem rudd­ust inn …
Tayl­or var skot­in átta sinn­um af lög­reglu­mönn­um sem rudd­ust inn í íbúð henn­ar í Louis­ville 13. mars. AFP

Mótmælendur í Kentucky í Bandaríkjunum hafa hafið hungurverkfall og krefjast réttlætis handa Breonnu Taylor, svartri konu sem drepin var af lögreglu á heimili sínu í mars.

Þúsundir Bandaríkjamanna lögðu niður störf og gengu út af vinnustöðum sínum í dag til að mótmæla kynþáttafordómum, ójöfnuði og ofbeldi lögreglu, en verkföllin eru nýjustu aðgerðir mótmælenda, sem mótmælt hafa í að verða tvo mánuði, eða síðan George Floyd var drepinn er lögreglumaður kraup á hálsi hans við handtöku 25. maí.

Samkvæmt skipuleggjendum verkfallanna ætla tugir þúsunda að leggja niður störf hið minnsta hluta úr degi í 25 borgum.

Fjórir mótmælendur eru í hungurverkfalli í Louisville í Kentucky, en þeir krefjast þess að tveir lögregluþjónar sem komu að dauða Taylor verði reknir úr starfi og sviptir lífeyrisréttindum sínum. Þriðja lögregluþjóninum hefur þegar verið vikið úr starfi, en hann hefur áfrýjað ákvörðuninni.

Tayl­or var skot­in átta sinn­um af lög­reglu­mönn­um sem rudd­ust inn í íbúð henn­ar í Louis­ville 13. mars. Þeir voru með hús­leit­ar­heim­ild í tengsl­um við fíkni­efn­a­rann­sókn en eng­in fíkni­efni fund­ust í íbúðinni, og raunar var lögregla hvorki að eltast við Taylor né unnusta hennar, heldur beindist málið að einstaklingi sem þegar var í haldi lögreglu þegar innrásin átti sér stað.

 Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert