Fyrrverandi fangavörður fékk skilorðsbundinn dóm

Fyrrverandi fangavörður í Stutthof-fangabúðum nasista var í dag dæmdur samsekur um grimmdarverk í seinni heimstyrjöldinni í Þýskalandi. 

Bruno Dey, sem er 93 ára gamall, var í Hamborg dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Er talið að þetta sé síðasti dómurinn sem fellur í máli gegn fangavörðum nasista en Dey var dæmdur fyrir hlutdeild í morðunum á 5.230 einstaklingum í Stutthof-búðunum skammt frá Gdansk í Póllandi.

Bruno Dey sést hér koma inn í réttarsalinn í Hamborg.
Bruno Dey sést hér koma inn í réttarsalinn í Hamborg. AFP

Réttarhöldin fóru fram fyrir unglingadómstól þar sem Dey var 17 og 18 ára gamall þegar hann starfaði við fangabúðirnar. 

Frá Stutthof-búðunum í Sztutowo.
Frá Stutthof-búðunum í Sztutowo. AFP
Stutthof-fangabúðirnar í Póllandi.
Stutthof-fangabúðirnar í Póllandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert