Alríkislögreglumenn byrja að yfirgefa Portland

Alríkislögreglumenn þykja hafa verið mjög harðhentir við mótmælendur. Þeir eru …
Alríkislögreglumenn þykja hafa verið mjög harðhentir við mótmælendur. Þeir eru einnig sakaðir um að hafa numið fólk á brott án heimildar. AFP

Kate Brown, ríkisstjóri Oregon-ríkis í Bandaríkjunum, greindi frá því í dag að alríkislögreglumenn myndu að yfirgefa borgina Portland í áföngum. Styr hefur staðið um veru þeirra í borginni en þeir hafa ítrekað lent í átökum við mótmælendur og hafa verið sakaðir um að nema mótmælendur á brott ólöglega.

Settur forstjóri innanríkisöryggismáladeildar ríkisins (e. Department of Homeland Security) sagði í yfirlýsingu að búið væri að semja við Brown um aðgerðaáætlun varðandi brottflutning alríkislögreglunnar. AP-fréttaveitan greinir frá.

„Ríkislögreglan og staðbundnar lögreglusveitir munu halda áfram að verja eignir og sjá um löggæslu á götum, sérstaklega götum sem eru nálægt alríkisbyggingum sem atlaga hefur verið gerð að síðustu tvo mánuði,“ sagði Wolf.

Alríkislögreglan mun yfirgefa miðborg Portland á morgun. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að alríkislögreglumenn myndu ekki yfirgefa Portland fyrr en stjórnvöld þar ná að tryggja öryggi borgarinnar.

Ítrekað hefur komið til átaka milli mótmælenda og alríkislögreglunnar.
Ítrekað hefur komið til átaka milli mótmælenda og alríkislögreglunnar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert