Mikilvægt að forðast hernað á norðurslóðum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ísland vill vernda norðurslóðir fyrir aukinni spennu milli Bandaríkjanna og Kína. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í samtali við AFP-fréttaveituna.

Mike Pom­peo, ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, heimsótti Danmörku í síðustu viku þar sem hann gagnrýndi Kínverja vegna ásóknar þeirra í norðurslóðir.

„Við höfum séð aukna spennu milli Bandaríkjanna og Kína,“ segir Katrín og bætir við að bæði lönd sýni norðurslóðum mikinn og aukinn áhuga.

Pompeo ítrekaði vestræna samvinnu á norðurslóðum í heimsókn sinni til Danmerkur; ellefu mánuðum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti yfir áhuga á því að kaupa Grænland.

Katrín segist einblína á að hafa spennuna sem minnsta á norðurslóðum. 

„Við ættum að einblína á að forðast hernað á norðurslóðum, það er mikilvægt fyrir íbúa svæðisins og umhverfið,“ segir Katrín.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert