„Ég varð hreinlega fyrir áfalli“

MS Roald Amundsen við bryggju í Tromsø. Lögregla þar hefur …
MS Roald Amundsen við bryggju í Tromsø. Lögregla þar hefur hafið rannsókn á málinu, en stjórnendur Hurtigruten reyndu að koma í veg fyrir að smitið kæmist í hámæli. Alls hefur nú 41 smit greinst meðal áhafnar og farþega. AFP

Lögreglan í Tromsø í Noregi hefur hafið rannsókn á norsku farþegaskipaútgerðinni Hurtigruten og hver tildrög þess voru að á fjórða hundrað farþegum í tveimur vikulöngum siglingum MS Roald Amundsen var ekki tilkynnt fyrr en undir kvöld á föstudag, að farþegi í fyrri siglingunni greindist með kórónuveirusmit á miðvikudaginn var.

Eru stjórnendur Hurtigruten grunaðir um stórfellt brot á norskum sóttvarnalögum með því að hafa fyrst sniðgengið tilmæli læknis í Vesterålen, sem meðhöndlar farþegann, og í kjölfarið skýr fyrirmæli Lýðheilsustofnunar Noregs (FHI) um að hafa tafarlaust samband við alla farþega siglinganna tveggja og greina þeim frá því að þeir yrðu að fara í sóttkví og gangast undir veirupróf.

Norska dagblaðið VG greindi frá því í gær, að stjórnendur Hurtigruten hefðu lagst eindregið gegn því að sveitarfélag farþegans, sem fyrst greindist með veirusýkingu, sendi út fréttatilkynningu um málið, þar sem þeir vildu ekki að sýkingin um borð yrði gerð heyrum kunn.

Hefur blaðið fengið að sjá tölvupóstsamskipti, er að þessu lúta, og birti í gær eftirfarandi klausu úr tölvupósti frá Martin Larsen Drageset, sóttvarnalækni í Hadsel í Vesterålen, til FHI: „Hurtigruten óskar eftir því að málið komist ekki í hámæli. Þetta kom fram í samtali við upplýsingafulltrúa fyrirtækisins. Þeir biðja um að fá að leysa málið sjálfir,“ ritar læknirinn í pósti sínum.

Öllum siglingum aflýst

Af farþegahópunum tveimur var sá síðari, 209 manns, um borð í Roald Amundsen þegar boðin bárust frá Line Vold, deildarstjóra hjá FHI, en enginn þeirra fékk þó að vita neitt fyrr en í land var komið í Tromsø tveimur dögum síðar. Hurtigruten hefur rifað seglin í kjölfar málsins og hætt öllum farþegasiglingum, en eins og greint var frá á mbl.is um helgina kom upp úr kafinu að 34 úr áhöfn skipsins reyndust smitaðir og hafa nú fimm farþegar að auki greinst með kórónuveirusmit svo alls hafa, að meðtöldum þeim fyrsta sem greindist, 39 manns af skipinu greinst með smit. Um helgina var talað um 36 úr áhöfn, en tveir, sem í fyrstu virtust smitaðir, reyndust það ekki og leiðrétti FHI töluna í gærkvöldi.

Uppfært 4. ágúst kl. 11:00: Í morgun bárust hins vegar fréttir af tveimur nýjum smitum hjá farþegum svo heildartalan er 41 smit.

Farþegar siglinganna tveggja búa í 69 sveitarfélögum vítt og breitt um Noreg og kepptust heilsugæslustöðvar og starfsfólk Hurtigruten við að ná sambandi við fólkið með tölvupósti, SMS-skeytum og hringingum frá því síðdegis á föstudag og alla helgina. Þegar mest var sátu 60 í sóttkví í Tromsø, en í gær hafði þeim fækkað í 40.

Vissi ekki neitt

„Ég varð hreinlega fyrir áfalli,“ segir Lise Horgmo, 46 ára gamall geðhjúkrunarfræðingur frá Þrándheimi, í samtali við Morgunblaðið. Horgmo var í sumarfríi og með seinni siglingu Roald Amundsen frá Tromsø til Svalbarða og til baka. Vissi hún ekkert af málinu fyrr en hún hafði tekið leigubíl, flogið til Þrándheims, farið í búðina og svo heim.

Geðhjúkrunarfræðingurinn Lise Horgmo segir sínar farir ekki sléttar eftir siglinguna …
Geðhjúkrunarfræðingurinn Lise Horgmo segir sínar farir ekki sléttar eftir siglinguna örlagaríku með MS Roald Amundsen í síðustu viku. Hún situr nú í sóttkví síðustu daga sumarfrísins sem hún mun eiga sjö klukkustundir eftir af þegar sóttkví lýkur. Ljósmynd/Úr einkasafni

Greinir hún frá því að hún hafi verið með þeim fyrstu frá borði þegar skipið kom til Tromsø, farið á hótel skammt frá höfninni og pantað þangað leigubíl. „Svo fór ég bara upp á flugvöll þar sem ég átti pantað flug heim til Þrándheims,“ segist Horgmo frá, en hún gekk þá með öllu grunlaus um smit sem stjórnendur Hurtigruten höfðu vitað um í tvo sólarhringa. Hún flaug heim grímuklædd eins og reglur um innanlandsflug í Noregi gera ráð fyrir, settist upp í bifreið sína, kom við í búðinni og fór svo á heimili sitt þar sem hún býr ein.

„Ég fékk tölvupóst [frá Hurtigruten] klukkan 18:27, en ég les aldrei póstinn minn. Svo klukkan hálfníu fæ ég SMS-skilaboð um smitið,“ segir Horgmo og þá kom áfallið. „Þessi háttsemi er með ólíkindum, ég var búin að taka leigubíl, fara í flug og kaupa í matinn og ég vissi ekki neitt,“ segir hjúkrunarfræðingurinn. Hún hafi svo fengið símtal frá Hurtigruten þar sem hún hafi verið beðin afsökunar á þessari handvömm.

Sjö tímar eftir af fríinu

„Það breytti nú satt að segja ekki miklu,“ segir Horgmo sem gekkst undir veirupróf seint á föstudagskvöld og fékk sér til mikils léttis að vita, um hádegi á laugardag, að prófið hefði reynst neikvætt. Það í sjálfu sér var þó skammgóður vermir. Þar sem hún starfar í heilbrigðisstétt þarf hún að gangast undir annað próf í dag og hvað sem öllum niðurstöðum líður er hjúkrunarfræðingnum nauðugur einn kostur að sitja í sóttkví á heimili sínu það sem eftir lifir sumarfrísins.

„Það verða sjö klukkutímar eftir af fríinu mínu þegar sóttkvínni lýkur,“ segir Horgmo og vottar fyrir hlátri þrátt fyrir umgjörð málsins. „Ég ætlaði að nota vikuna núna til að aka niður eftir til Sognsævar og Firðafylkis [nú Vestlandet-fylki] og skoða mig um þar, ég bjó þar einu sinni,“ segir Lise Horgmo í Þrándheimi sem fer beint úr sóttkví í vinnuna í næstu viku.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert