Þrír féllu í árásum Tyrkja

Recep Tayyip Er­dog­an, forseti Tyrklands.
Recep Tayyip Er­dog­an, forseti Tyrklands. AFP

Þrír féllu í dróna-árás Tyrkja í dag í sjálfsstjórnarhéraði Kúrda, þar af voru tveir yfirmenn innan írakska hersins. Tyrkir hafa nú um nokkurra vikna skeið beitt árásum gegn herstöðvum á svæðinu.

Í samtali við AFP segir fulltrúi írakska hersins að tveir yfirmenn úr sveitum landamæravarða og bílstjóri bifreiðar sem þeir sátu í hafi orðið fyrir árásinni. Fulltrúi hersins segir jafnframt að yfirmennirnir tveir hafi verið á fundi með vígamönnum úr Verkamannaflokki Kúrdistan, PKK, þegar árásin var gerð.

PKK er skilgreint af Tyrkjum og vestrænum bandamönnum þeirra sem hryðjuverkasamtök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert