83 börn myrt í Kongó

Börn að leik við afar slæmar aðstæður í Lýðveldinu Kongó.
Börn að leik við afar slæmar aðstæður í Lýðveldinu Kongó. Ljósmynd/Barnaheilld

83 börn hafa verið myrt af árásarhópum í Lýðveldinu Kongó frá því í apríl en átök hafa staðið yfir í fjölda ára. Þau náðu hámarki í Ituri-héraði í vor þar ráðist var á skóla og heilbrigðisstofnanir með fyrrgreindum afleiðingum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheill en átökin í Kongó hafa oft verið nefnd Gleymda stríðið.

Þar segir að 14 barnanna hafi verið afhöfðuð með sveðjum og eitt brennt lifandi.

17 börn til viðbótar særðust í árásunum. Kynferðisofbeldi gegn börnum hefur einnig aukist gífurlega á svæðinu.

Meira en 300 þúsund manns, börn í meirihluta, hafa flúið átökin í Ituri á þessu ári, sem er eitt fátækasta og óöruggasta svæði landsins. Fólksflutningar þessir hafa sett mikið álag á starf Barnaheilla á svæðinu en erfitt hefur reynst að koma aðstoð og birgðum til flóttafólks.

Meirihluti flóttafólks hefur ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni eða hreinlætisvörum, en mesta útbreiðsla farsótta er í Ituri héraði. Heilbrigðisþjónusta í Ituri héraði er mjög takmörkuð og hafa um 22 heilbrigðisstofnanir verið eyðilagðar í átökunum og þar með hafa stórar birgðir af bóluefni skemmst. Að auki hafa um 160 skólar verið sprengdir upp og eyðilagðir.

Skortur á aðgengi að húsnæði, næringu, heilbrigðisþjónustu og menntun, gerir börn berskjölduð fyrir ofbeldi og misnotkun. „Aðstæður barna eru að versna með hverjum deginum. Við verðum að tryggja að þessi börn geti snúið aftur í skólann og að fjölskyldur þeirra geti fengið heilbrigðisþjónustu," segir Malik Allaouna, framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children í Kongó.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert