Bannon handtekinn og ákærður fyrir fjársvik

Steve Bannon.
Steve Bannon. AFP

Steve Bannon, fyrrverandi ráðgjafi Trumps Bandaríkjaforseta, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir fjársvik. Málið tengist fjáröflunarherferð til að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. 

Bannon er, ásamt þremur öðrum, sakaður um að hafa svindlað á mörg hundruð þúsund manns sem lögðu fé í verkefnið „Við reisum múrinn“. Alls söfnuðust 25 milljónir dala í sjóðinn, sem samsvarar um 3,4 milljörðum kr., að því er bandaríska dómsmálaráðuneytið greinir frá. 

Bannon er sagður hafa fengið rúma milljón dala í gegnum félag sem hann stýrði og var hluti upphæðarinnar, a.m.k. nokkur hundruð þúsund dalir, nýttur í eigin þágu. Fram kemur á vef BBC að hann muni mæta fyrir dómara síðar í dag. 

Steve Bannon sést hér í Hvíta húsinu árið 2017, en …
Steve Bannon sést hér í Hvíta húsinu árið 2017, en hann starfaði þá sem ráðgjafi Bandaríkjaforseta. AFP

Þeir sem stóðu að fjáröfluninni höfðu lofað því að reisa múr á landi í einkaeigu. Múrinn við landamærin að Mexíkó var eitt af helstu kosningaloforðum Trumps árið 2016. 

Audrey Strauss, starfandi ríkissaksóknari syðri hluta New York-ríkis, segir að Bannon, Brian Kolfage, Andrew Badolato og Timothy Shea hafi safnað milljónum dala í því augnamiði undir því yfirskini að féð yrði nýtt til að reisa múr. 

Kolfage, sem setti söfnunina á laggirnar, er sagður hafa með leynd dregið sér 350.000 dali sem hann nýtti í eigin þágu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert