Ríkisstjórn verði mynduð innan tveggja vikna

Emmanuel Macron hélt blaðamannafund í Beirút í kvöld.
Emmanuel Macron hélt blaðamannafund í Beirút í kvöld. AFP

Líbanskir stjórnmálaleiðtogar hafa lofað að mynda nýja ríkisstjórn innan tveggja vikna. Frá þessu greindi Emmanuel Macron, forseti Frakklands, í dag eftir viðræður við fulltrúa stjórnmálaflokka í ríkinu fyrir botni Miðjarðarhafs.

„Það sem ég hef beðið um, og það sem allir stjórnmálaflokkar án undantekninga hafa skuldbundið sig til að gera í kvöld, er að myndun nýrrar ríkisstjórnar taki ekki meira en fimmtán daga,“ sagði forsetinn í ræðu.

Bætti hann við að ríkisstjórnin yrði skipuð hæfum einstaklingum og yrði sömuleiðis sjálfstæð eining, með stuðningi stjórnmálaflokka.

Mustapha Adib, sem gegnt hafði embætti sendiherra Líbanons í Berlín frá árinu 2013, var í gær útnefndur forsætisráðherra landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert