Fordæma ummæli utanríkisráðherra Bandaríkjanna

Borgarvirkið Kreml í miðri Moskvuborg.
Borgarvirkið Kreml í miðri Moskvuborg. AFP

Stjórnvöld í Kreml fordæma yfirlýsingu Bandaríkjanna, um að háttsettir rússneskir embættismenn gætu hafa staðið að því að byrla stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní taugaeitur.

Segja þau ummæli þessi, sem Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna lét falla í gær, óásættanleg.

„Við teljum óásættanlegt að leggja það á nokkurn hátt til, beint eða óbeint, að rússneskir embættismenn hafi átt hlut að þessu máli,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Dmitrí Peskov, talsmanni rússneskra stjórnvalda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert