Svaf í sjálfkeyrandi bíl á yfir 140 km/klst

Svo virðist sem að ökumaður bifreiðarinnar og farþegi hafi hallað …
Svo virðist sem að ökumaður bifreiðarinnar og farþegi hafi hallað sér aftur og sofið á meðan sjálfstýring bifreiðarinnar sá alfarið um aksturinn. Ljósmynd/Skjáskot úr eftirlitsbúnaði lögreglu

Kanadískur ökumaður sjálfkeyrandi Teslu-bifreiðar hefur verið ákærður fyrir háskalegan akstur fyrir að hafa sofið værum blundi á meðan bifreiðin þeysti áfram á yfir 140 km/klst.

Lögreglan í Alberta-fylki í Kanada segir að bæði framsæti bifreiðarinnar hafi verið hallað alla leið aftur og að ökumaður og farþegi hefðu virst sofandi í bílnum. BBC greinir frá.

Ökumaðurinn sem er tvítugur, mun þurfa að fara fyrir dómstól í desember. Hann var upphaflega ákærður einungis fyrir hraðakstur og sviptur ökuleyfi í sólarhring vegna þreytu en síðan fyrir hættulegan akstur.

Aldrei séð nokkuð þessu líkt áður

Bifreiðin er sögð hafa verið á 140 km/klst en aukið hraðann í 150 km/klst þegar lögreglubifreið kveikti neyðarljós og hóf eftirför. Tesla-bifreiðar eru á svokallaðri annars stigs sjálfstýringu, sem krefst þess að ökumaður sé á varðbergi, með hendur á stýri og tilbúinn að grípa inn í aðstæður ef þarf.

„Enginn var að horfa út um bílrúðurnar til að horfa á hvert bifreiðin var að fara. Ég hef verið lögreglumaður í rúmlega 23 ár, meirihluta þeirra ára í umferðardeild, og ég er orðlaus. Ég hef aldrei séð nokkuð þessu líkt áður, en það var auðvitað ekki hægt því tæknin var ekki til staðar,“ sagði yfirlögregluþjónninn Darri Turnbull í viðtali við CBS News.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert