Tíu létust þegar íbúðarhúsnæði hrundi

Viðbragðaðilar reyna að bjarga þeim sem fastir eru í rústum …
Viðbragðaðilar reyna að bjarga þeim sem fastir eru í rústum byggingarinnar. AFP

Hið minnsta tíu eru látnir og 25 er saknað eftir að þriggja hæða íbúðarhúsnæði hrundi snemma á mánudagsmorgun í vesturhluta Indlands. 

Slysið varð um klukkan 3:40 í morgun að staðartíma í borginni Bhiwandi. „Tíu eru látnir, við höfum náð að bjarga 11 lifandi,“ hefur AFP-fréttaveitan eftir björgunaraðila. 

Um 40 viðbragðsaðilar reyna nú að bjarga fleirum úr rústum húsnæðisins, en talið er að á bilinu 20 til 25 séu fastir í rústunum. 

Óljóst er hvað olli hruninu, en ekki er óalgengt að illa byggð húsnæði á Indlandi hrynji á þessum árstíma vegna mikilla rigninga. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert