Uncle Ben's fær „réttsýnna“ nafn

Uncle Ben's var til langs tíma vinsælasta hrísgrjónavörumerki Bandaríkjanna.
Uncle Ben's var til langs tíma vinsælasta hrísgrjónavörumerki Bandaríkjanna. AFP

Matvælaframleiðandinn Mars Foods, sem framleiðir hrísgrjónin Uncle Ben's, hefur tilkynnt að nafni hrísgrjónanna verði breytt í Ben's Original. Þá verður myndin sem prýðir pakkningarnar, af gömlum, brosmildum, svörtum manni fjarlægð.

Breytingin kemur í kjölfar samþykktar fyrirtækisins um að endurskoða vörumerkjastefnu sína í ljósi mótmæla gegn kynþáttafordómum og lögregluofbeldi í Bandaríkjunum. Markaðssetning hrísgrjónanna, sem komu á markað á fimmta áratugnum, hefur verið gagnrýnd fyrir að byggja á rasískum staðalímyndum.

Titlar á borð við uncle og aunt (frændi og frænka) voru algengir í suðurríkjum Bandaríkjanna í stað virðulegri titla á borð við Mister og Missus (herra og frú). Nafn hrísgrjónanna er sagt koma frá bónda í Texas-ríki sem var þekktur fyrir gæðahrísgrjón, en maðurinn á myndinni er Frank Brown, sem var yfirþjónn á veitingastað í Chicago árið 1947.

„Við skiljum ranglætið sem var tengt við fyrra vörumerki,“ segir í yfirlýsingu frá Mars, en gera má ráð fyrir að nýju umbúðirnar fari í verslanir í byrjun næsta ári. Ekki fylgir sögunni hvort breytingin nær til annarra landa, en hrísgrjónin eru til að mynda seld hér á landi.

Þá tilkynnti fyrirtækið að það myndi einnig styrkja mannréttindasamtökin National Urban League um tvær milljónir dala (270 m.kr.) sem nýta á til námsstyrkja fyrir svarta kokkanema. Eins myndi fyrirtækið fjárfesta 2,5 milljónum dala í Greenville í Mississippi þar sem hrísgrjónin eru framleidd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert