Trump tístir um innlögnina

Trump var nokkuð brattur í tilkynningu sinni á Twitter.
Trump var nokkuð brattur í tilkynningu sinni á Twitter. Skjáskot/Twitter

Donald Trump Bandaríkjaforseti tísti nú á ellefta tímanum um veikindi sín og innlögn sína á Walter Reed-hersjúkrahúsið. Trump greindi frá því í fyrrinótt að hann og kona hans Melania hefðu smitast af kórónuveirunni.

„Mig langar að þakka öllum fyrir þann stuðning sem okkur hefur verið sýndur. Ég verð núna fluttur á Walter Reed-sjúkrahúsið. Ég held að mér farnist ágætlega, forsetafrúnni farnast ágætlega. 

Við ætlum að sjá til þess að hlutirnir fari vel. Ég sendi öllum þakkir fyrir batakveðjurnar. Þeim mun ég aldrei gleyma,“ sagði Trump í tilkynningu sinni á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert