Talsmaður Trumps greinist með smit

Kayleigh McEnany fjarlægir grímu af höfði sér fyrir sjónvarpsviðtal á …
Kayleigh McEnany fjarlægir grímu af höfði sér fyrir sjónvarpsviðtal á föstudag. AFP

Kayleigh McEnany, talsmaður Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hefur greinst með kórónuveirusmit. Þrír dagar eru síðan Trump var lagður inn á sjúkrahús vegna sjúkdómsins sem veiran veldur.

„Eftir að hafa stöðugt mælst neikvæð á hverjum degi frá því á fimmtudag, þá greindist ég jákvæð fyrir kórónuveirusmiti á mánudagsmorgun,“ segir McEnany í yfirlýsingu. Bætir hún við að hún sé einkennalaus.

Ávarpaði blaðamenn í gær

Segist hún vera á leið í einangrun í ljósi tíðindanna, og bendir á að engir blaðamenn, framleiðendur eða fulltrúar fjölmiðla hafi verið settir á lista yfir þá sem átt hafi í nánum samskiptum við hana.

Þó ávarpaði hún blaðamenn við Hvíta húsið í gær, án þess að hafa grímu fyrir vitum sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert