Google dæmt til að greiða fyrir fréttir

Google er bandarískur tæknirisi, helst þekktur fyrir samnefnda leitarvél sína.
Google er bandarískur tæknirisi, helst þekktur fyrir samnefnda leitarvél sína. AFP

Áfrýjunardómstóll í París komst að þeirri niðurstöðu í dag að fyrirskipun um að tæknirisinn Google semdi við fjölmiðla í langvinnri deilu um greiðslur fyrir fréttir sem birtast í leitarvél Google yrði haldið til streitu.

Úrskurðað var í málinu á skömmu eftir að Google hafði tilkynnt að fyrirtækið væri að nálgast samkomulag við frönsku fjölmiðlafyrirtækin um greiðslur fyrir fréttir sem birtast í leitarvél Google

Málið snerist um það hvort franska samkeppniseftirlitið hefði farið fram úr sér þegar það skipaði Google að semja við fjölmiðla í deilu um höfundarrétt. Áfrýjunardómstóllinn taldi svo ekki vera. 

Dómurinn er nýjasta vendingin í langvinnum deilum evrópskra fjölmiðlafyrirtækja sem hafa krafist greiðslna fyrir þær fréttir sem birtast í leitarvél Google. Bandaríski tæknirisinn hefur neitað því að framfylgja Evrópureglugerð sem segir til um að fyrirtækið skuli greiða fjölmiðlafyrirtækjum fyrir slíkar leitarniðurstöður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert