Beint: Barrett mætt fyrir réttarfarsnefndina

Amy Coney Barrett á fundi réttarfarsnefndarinnar í dag.
Amy Coney Barrett á fundi réttarfarsnefndarinnar í dag. AFP

Amy Coney Barrett, sem tilnefnd hefur verið til embættis hæstaréttardómara í Bandaríkjunum, mætti í dag á fund réttarfarsnefndar öldungadeildar þingsins, en þar mun næstu daga fara fram yfirheyrsla (e. hearing) þar sem nefndarmenn munu spyrja hana um ýmis mál, líkt og venja er áður en hæstaréttardómarar eru samþykktir við dómstólinn.

Hin 48 ára Bar­rett tek­ur við dóm­ara­stöðu Ruth Gins­burg, sem féll frá í síðasta mánuði, verði til­nefn­ing henn­ar samþykkt af öldungadeildinni.

Þykir Bar­rett íhalds­söm og er lík­legt að til­nefn­ing­in verði um­deild, auk þess sem hún hlaut naum­an minni­hluta hjá öld­unga­deild Banda­ríkj­anna þegar hún var kjör­in í um­dæm­is­dóm­stól í Chicago, með 55 at­kvæðum gegn 43.

Í dag er gert ráð fyrir framsögu nefndarmanna, en alls eru 22 í nefndinni. Þá mun Barrett flytja eigin framsögu. Á morgun og miðvikudaginn er gert ráð fyrir spurningum nefndarmanna og svörum Barrett.

Nokkrir nefndarmenn flytja erindi sitt í fjarfundabúnaði, en Barrett er sjálf á fundinum og ber hún grímu sem sóttvarnarráðstöfun.

Hægt er að fylgjast með fundi nefndarinnar hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert