FBI sakar Írana og Rússa um afskipti

Joe Biden og Donald Trump, sem etja kappi í kosningunum, …
Joe Biden og Donald Trump, sem etja kappi í kosningunum, á samsettri mynd. AFP

Íranar og Rússar hafa reynt að hafa áhrif á almenningsálitið í Bandaríkjunum í tengslum við forsetakosningarnar þar í landi sem eru fyrirhugaðar í byrjun nóvember.

Þetta kom fram á blaðamannafundi bandarísku alríkislögreglunnar FBI nú fyrir skömmu.

Tölvupóstar hafa borist frá Íran þar sem kjósendum hefur verið hótað, auk þess sem Íranar hafa sent frá sér falsmyndbönd með upplýsingum um atkvæðaseðla.

Örvæntingarfullar tilraunir

Einnig kom fram að Rússar og Íranar hafi komist yfir upplýsingar um kjósendur.

„Þetta eru örvæntingarfullar tilraunir af hálfu örvæntingarfullra andstæðinga,“ fullyrti forstjóri FBI, Christopher Wray.

Bandarískur almenningur var jafnframt fullvissaður um að atkvæði hans væru örugg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert