Reyndi að afhöfða konu í kirkju í Nice

Lögregla að störfum á vettvangi.
Lögregla að störfum á vettvangi. AFP

Maður vopnaður hnífi myrti þrjár manneskjur í og við kirkju í frönsku borginni Nice í morgun áður en lögregla tók hann höndum.

Frá þessu greina franskir fréttamiðlar en heimildir fréttastofu Reuters herma að kona, ein þeirra sem myrt voru, hafi verið afhöfðuð í árásinni.

Borgarstjórinn Christian Etrosi segist í tísti geta staðfest að allt leiði til þess að litið sé á árásina sem hryðjuverk. Um er að ræða Notre-Dame-basilíkuna í miðri borginni.

Uppfært:

Heim­ild­ar­menn fjöl­miðla eru nú ekki á einu máli um hvort önn­ur kvenn­anna hafi verið af­höfðuð eða hún skor­in á háls. Dagblaðið Le Monde hermir að árásarmaðurinn hafi ráðist á hana inni í kirkjunni, skorið hana á háls og reynt að afhöfða hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert