Íslendingar hvattir til að láta vita af sér

Skotárás átti sér stað í Vín í Austurríki í kvöld. …
Skotárás átti sér stað í Vín í Austurríki í kvöld. Fleiri liggja í valnum. AFP

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur Íslendinga sem eru staddir í Vín í Austurríki til að láta vita af sér. Kemur tilkynningin á facebooksíðu utanríkisráðuneytisins í kjölfar skotárásarinnar í borginni.

Þá eru Íslendingar í borginni hvattir til að fylgja tilmælum yfirvalda þar ytra og fylgjast með staðbundnum fjölmiðlum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert