Kanye kaus sjálfan sig

Það hefur verið talið frambjóðandanum Kanye West til tekna að …
Það hefur verið talið frambjóðandanum Kanye West til tekna að hann hafi unnið til fleiri Grammy-verðlauna en bæði Trump og Biden samanlagt. AFP

Það vill gleymast en rapparinn Kanye West er í framboði til forseta Bandaríkjanna.

Kanye er á kjörseðlinum í tólf ríkjum Bandaríkjanna og í færslu á Twitter minnir hann fylgjendur sína á framboðið með því að láta vita að hann hafi kosið sjálfan sig.

Kanye býður fram undir formerkjum kristilegrar íhaldsstefnu. Hann vill banna fóstureyðingar, endurvekja bænir í skólum, afnema dauðarefsingu, styðja við listnám og umhverfisvernd. Kanye hafði þegar lýst yfir stuðningi við Donald Trump forseta, eins og þekkt er, áður en hann tók þá ákvörðun að bjóða sjálfur fram.

Meðal þeirra sem lýstu yfir stuðningi við framboð hans eru frumkvöðullinn Elon Musk, rappararnir DaBaby og Chance the Rapper, og eiginkona hans Kim Kardashian. Hvort hugur fylgir máli hjá þeim skal ósagt látið.

Í Kaliforníuríki er Kanye á kjörseðlinum sem varaforsetaefni Ameríska óháða …
Í Kaliforníuríki er Kanye á kjörseðlinum sem varaforsetaefni Ameríska óháða flokksins. Í öðrum ríkjum er hann þó forsetaefni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert