Á fjórða hundrað handteknir í mótmælum

Lögreglumaður tekur mótmælanda höndum í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands. Þúsundir hafa …
Lögreglumaður tekur mótmælanda höndum í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands. Þúsundir hafa mótmælt í borginni í dag. AFP

Á fjórða hundrað manns hafa verið handteknir í mótmælum í Hvíta-Rússlandi í dag. Mótmælendur, sem skipta þúsundum, hafa komið saman í höfuðborginni Minsk og fleiri borgum enn einn daginn til að láta í ljós andstöðu sína við endurkjör Alexanders Lukasjenkós í embætti forseta í ágúst.

Alþjóðasamfélagið hefur ekki viðurkennt úrslit kosninganna og sagt niðurstöður þeirra falsaðar. Opinberar tölur segja forsetann hafa fengið um 80% greiddra atkvæða, en hans helsta mótframbjóðanda, Svetlönu Tik­hanovskayu, um 10%.

Mannréttindasamtökin Viasna segja að 340 hið minnsta hafi verið handteknir í dag, þeirra á meðal blaðamenn og afreksíþróttamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert