Átök um lykilborg í Nagornó-Karabak

Ilham Aliyev, forseti Aserbaídsjan, í sjónvarpsávarpi sínu í dag.
Ilham Aliyev, forseti Aserbaídsjan, í sjónvarpsávarpi sínu í dag. AFP

Ilham Aliyev, forseti Aserbaídsjan, tilkynnti í sjónvarpsviðtali í dag að Aserar hefðu náð borginni Shusha, einnig þekktri sem Shushi í Armeníu, á sitt vald, en um er að ræða eina af lykilborgum í héraðinu Nagornó-Karabak, þar sem nú standa yfir átök á milli Armeníu og Aserbaídsjan.

Armenar neita hins vegar fréttunum og segja að átök eigi sér enn stað í borginni.

Yfirráð yfir borginni væri stórsigur fyrir Asera í héraðinu umdeilda, en borgin er í hæðunum fyrir ofan höfuðborg svæðisins, Stepanakert, þekkta sem Khankendi af Aserum og á leiðinni milli Stepanakert og landamæra Armeníu.

Armen­ía og Aser­baíd­sj­an hafa deilt um héraðið Nagornó-Kara­bak í ára­tugi og áður hef­ur komið til átaka líkt og nú. Ríf­lega þúsund hafa far­ist í átök­un­um síðan þau hóf­ust í sept­em­ber, bæði her­menn og óbreytt­ir borg­ar­ar og þá hafa borist fregn­ir af því að blaðamenn á svæðinu, hvaðanæva úr heim­in­um, hafi særst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert