Slasaðist er hann lék við hundinn sinn

Joe Biden flytur ræðu í tilefni þakkargjörðarhátíðarinnar.
Joe Biden flytur ræðu í tilefni þakkargjörðarhátíðarinnar. AFP

Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, brákaði bein í fæti er hann rann til þegar hann var að leika við hundinn sinn. Hann mun líklega þurfa á göngugifsi að halda næstu vikurnar.

Biden sneri sig á ökkla á laugardaginn er hann var úti að leika með Major, öðrum af tveimur hundum sínum.

Læknir verðandi forsetans, Kevin O´Connor, sagði að upphaflega hefðu ekki sést augljós merki um brákað bein í myndgreiningu. Við nánari athugun komu í ljós minniháttar meiðsli.

Biden-hjónin tóku Major í fóstur árið 2018 en hinn hundurinn, Champ, hefur verið með fjölskyldunni frá árinu 2008.

Biden, sem varð 78 ára fyrr í þessum mánuði, verður elsti Bandaríkjaforsetinn þegar hann verður vígður inn í embættið 20. janúar á næsta ári.

Heilsugæslustöðin þar sem Biden fékk læknisaðstoð.
Heilsugæslustöðin þar sem Biden fékk læknisaðstoð. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert