Ríkisstjórn Austurríkis tilkynnti í dag að skíðasvæðin verði opnuð á nýjan leik á aðfangadag en hótel verði lokuð áfram yfir hátíðarnar.
Kanslari Austurríkis,SebastianKurz, kynnti nýjar sóttvarnareglur í landinu en verið er að draga úr þeim hömlum sem þar hafa ríkt. „Frá og með 24. desember er heimilt að stunda íþróttir utandyra, svo sem skíðamennsku, að nýju.Þannig getur austurríska þjóðin haft möguleika á að iðja íþróttir um hátíðarnar,“ sagði Kurz á blaðamannafundi í dag.
Allt hefur verið meira og minna lokað í Austurríki undanfarnar vikur en nú í vikunni er verið að aflétta einhverjum hömlum. Aftur á móti verða hótel lokuð fram á nýtt ár og verða ekki opnuð fyrr en í fyrsta lagi 7. janúar.
Stjórnendur skíðasvæða í Frakklandi eru afar ósáttir við ákvörðun yfirvalda enda spurning um hvort svæðin lifi einfaldlega af að vera lokuð yfir hátíðarnar þar sem um fjórðungur árstekna þeirra kemur inn á þeim tíma.