Bæði lönd saka hitt um að rjúfa friðinn

Gröf armensks hermanns.
Gröf armensks hermanns. AFP

Armenar og Aserar saka nú hvorir aðra um að brjóta friðarsamkomulag, sem skrifað var undir fyrir tilstilli Rússa og batt enda á átök um hið umdeilda hérað Nagornó-Karabak. Aserar segja að fjórir hermenn þeirra hafi látist síðan friðarsamkomulag var undirritað seint í nóvember. Þá sögðu Armenar í gær að þrír hermenn þeirra hefðu særst í átökum við aserska hermenn nýverið. 

Svo virðist sem átök séu að brjótast út að nýju á svæðinu.

Rúmlega 5.000 manns, óbreyttir borgarar jafnt sem hermenn, hafa látist frá því að átök brutust út milli Asera og Armena í september. Héraðið sem um er deilt, Nagornó-Karabak, hefur verið bitbein ríkjanna tveggja síðan þau fengu bæði sjálfstæði eftir fall Sovétríkjanna. 

Þegar friðarsamkomulag var undirritað í nóvember þótti mörgum ljóst að aðeins væri tímaspursmál hvenær kæmi aftur til átaka. Forsætisráðherra Armena, Ni­kol Pashiny­an, hefur verið harðlega gagnrýndur í heimalandinu fyrir uppgjöf sína í stríðinu. Frá því að hann skrifaði undir friðarsamning og játaði þar með ósigur í stríðinu við Asera hafa brotist út óeirðir í Jerevan, höfuðborg landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert